Við höldum götum bæjarins greiðum í dag en búum okkur undir törn næstu tvo daga þar sem von er á versnandi veðri, segir Gunnþór Hákonarson yfirverkstjóri hjá Akureyrarbæ. Talsvert hefur snjóað á Akureyri síðasta sólarhringinn en Gunnar segir lítið um að ökumenn hafi lent í vandræðum vegna ófærðar. Það gæti þó breyst snögglega frá og með kvöldinu þar sem vaxandi norðanátt með snjókomu er spáð fram eftir degi á laugardaginn.
Við reynum að draga lappirnar í snjómokstri fram að morgundeginum og safna þessu saman. Það er ekki skynsamlegt að vera með öll tækin í gangi þegar von er á enn meiri ofankomu, segir Gunnþór.