Þjófarnir hafa greinilega gefið sé nokkuð rúman tíma, þeir tóku meðal annars fartölvu, borðtölvu, myndavélar, skartgripi, snyrtivörur, eldhúshnífa, rakvél og vín, segir eigandi einbýlishúss við Jörvabyggð á Akureyri. Brotist var inn í húsið síðasta föstudagsmorgunn og uppgvötaðist þjófnaðurinn í hádeginu.
Þjófarnir spenntu upp glugga baka til, en fóru grenilega með þýfið út um aðaldyrnar. Allir gluggar voru lokaðir og dyrnar voru læstar, þannig að ásetningurinn var greinilega einbeittur.
Lögreglan á Akureyri rannsakar málið.
Við erum sem betur fer ágætlega tryggð. Hins vegar voru ýmsir erfðagripir teknir og myndirnar í tölvunum skipta þúsundum. Tilfinningalegt tjón er því mikið og svo verður maður auðvitað fyrir andlegu áfalli þegar svona lagað gerist. segir eigandinn.