Brotist inn í einbýlishús á Akureyri

Jörfabyggðin í morgun  Mynd: Karl Eskil
Jörfabyggðin í morgun Mynd: Karl Eskil

„Þjófarnir hafa greinilega gefið sé nokkuð rúman tíma, þeir tóku meðal annars fartölvu, borðtölvu, myndavélar, skartgripi, snyrtivörur, eldhúshnífa, rakvél og vín, “ segir eigandi einbýlishúss við Jörvabyggð á Akureyri. Brotist var inn í húsið síðasta föstudagsmorgunn og uppgvötaðist þjófnaðurinn í hádeginu.

„Þjófarnir spenntu upp glugga baka til, en fóru grenilega með þýfið út um aðaldyrnar. Allir gluggar voru lokaðir og dyrnar voru læstar, þannig að ásetningurinn var greinilega einbeittur.“

Lögreglan á Akureyri rannsakar málið.

„Við erum sem betur fer ágætlega tryggð. Hins vegar voru ýmsir erfðagripir teknir og myndirnar í tölvunum skipta þúsundum. Tilfinningalegt tjón er því mikið og svo verður maður auðvitað fyrir andlegu áfalli þegar svona lagað gerist.“ segir eigandinn.

karleskil@vikudagur.is

 

 

Nýjast