Breytingar á starfsemi Isavia á Akureyri

Hjördís Þórhallsdóttir og Sigurður Hermannsson/mynd Karl Eskil
Hjördís Þórhallsdóttir og Sigurður Hermannsson/mynd Karl Eskil

Sigurður Hermannsson hefur látið af störfum fyrir aldurs sakir sem flugvallarstjóri á Akureyrarflugvelli og umdæmisstjóri Isavia á Norðurlandi. Isavia annast rekstur allra flugvalla á landinu og stýrir jafnframt flugumferð í íslenska flugstjórnarsvæðinu. Við starfinu hefur tekið Hjördís Þórhalldsdóttir. Þá hefur Þorlákur Snær Helgason verið ráðinn þjónustustjóri fyrir umdæmið, hann mun meðal annars fylgja eftir þjálfun flugvallarvarða og tyggja ýmsa samhæfingu starfa. Vegna þessara breytinga var starf aðstoðarmanns flugvallarstjóra lagt niður.

Starfsemin á Akureyrarflugvelli hefur aukist umtalsvert á undanförnum mánuðum. Í nóvember í fyrra hófu flugvallarverðir að ganga vaktir þar sem a.m.k. þrír starfsmenn eru á vakt á opnunartíma vallarins og alltaf er til staðar vaktmaður til að sinna sjúkraflugi. Auk þess tóku þeir yfir slökkvi- og björgunarþjónustu fyrir flugvöllnn. Þessar breytingar voru gerðar vegna aukinna krafna sem gerðar eru til alþjóðaflugvalla. Ráðinn var viðbótarmannskapur til þess að tryggja mönnun vaktanna, auk þess sem starfsmennirnir fengu víðtæka þjálfun. Þá voru gerðar breytingar á húsnæði Isavia til að tryggja góða vinnu- og hvíldaraðstöðu ástamt því að koma upp kennslu- og fundaraðstöðu fyrir starfsemina.

Í haust var suðurhluti flughlaðsins styrktur, þannig að nú er hægt að leggja þar þotum án vandræða.

Þessar vikurnar er verið að breyta aðstöðu tollsins í norðurenda flugstöðvarinnar. Breytingarnar munu auðvelda tollvörðunum vinnu sína til muna við móttöku á millilandafarþegum og verður aðstaðan fullbúin í lok ársins. Fyrir utan framkvæmdir á seinustu mánuðum hefur einnig verið fjárfest í búnaði á flugvellinum. Nýr sópur var tekin í notkun í október sem bætir vetrarþjónustu til muna.

karleskil@vikudagur.is

 

Nýjast