Á síðasta fundi skipulagsnefndar Akureyrarbæjar lagði skipulagsstjóri fram tillögu um breytingu á Aðalskipulagi Akureyrar vegna tengingar Dalsbrautar við lóð KA og Lundarskóla. Breyting þessi felur ekki í sér stefnu um leyfisveitingar til framkvæmda, sem tilgreindar eru í lögum um mat á umhverfisáhrifum og er hún því ekki háð lögum um umhverfismat áætlana. Breytingin er óveruleg og hefur hvorki áhrif á ósnortna náttúru, jarðmyndanir og vistkerfi, sem njóta sérstakrar verndar, verndarsvæði né skráðar fornminjar. Breytingin hefur ekki í för með sér neikvæð áhrif á nágranna eða landnotkun og nýtingu aðliggjandi svæða. Skipulagsnefnd leggur því til við bæjarráð/bæjarstjórn að tillagan verði samþykkt og skipulagsstjóra falið að annast gildistöku hennar.