Brenna og flugeldasýning

Myndin er tekin af vef Súlna
Myndin er tekin af vef Súlna

Hin árlega áramótabrenna á Akureyri verður á sínum stað við Réttarhvamm á gamlárskvöld, auk þess sem boðið verður upp á flugeldasýningu. Kveikt verður í brennunni kl. 20.30 en flugeldasýningin hefst kl. 21.00. Það eru Norðurorka, Afmælisnefnd bæjarins, Akureyrarstofa og Framkvæmdadeild sem standa fyrir þessari uppákomu, í samstarfi við björgunarsveitina Súlur á Akureyri.

Búast má við mikilli umferð við Réttarhvamm á gamlárskvöld og því er mælt með því að fólk leggi tímanlega af stað til að vera við brennuna og sjá flugeldasýninguna.

Hjá Akureyrarbæ er fylgst vel með veðri, en lögreglan hefur heimild til að banna íkveiku fari vindhraði yfir 15 metra á sek. Samkvæmt upplýsingum Vikudags verður staðan metin nánar síðdegis.

 

karleskil@vikudagur.is

 

Nýjast