Blysför á Þorláksfriðarmessu

Undanfarin ár hefur Friðarframtak staðið fyrir blysför á Þorláksmessu á Akureyri. Að þessu sinni verður gengið frá Samkomuhúsinu klukkan 20:00 og mun Ragnar Elías Ólafsson Þveræingagoði flytja ávarp.

Í tilkynningu frá aðstandendum blysfararinnar segir að gerð sé krafa um frið og að Ísland eigi enga aðild að stríði né hernámi.

„Stríðin eru heimshörmung. Nýju stríðin tengjast efnahagslegum hagsmunum og ójöfnuði.

 Í Bosníu, Kosovo, Afganistan, Írak, Palestínu, Líbíu, Sýrlandi.

Þessi stríð tengjast lika endalausum vestrænum íhlutunum undir merkjum mannréttinda og mannúðar en snúast í raun um olíu, vopnaframleiðslu, auðlindir og átök stórvelda um áhrifasvæði.

Ísland ber líka sína ábyrgð,“ segir jafnframt í tilkynningunni.

karleskil@vikudagur.is

Nýjast