Á miðvikudaginn, 31. október, verður endapunkti Bleika mánaðarins og Dömulegra dekurdaga á Akureyri náð. Af því tilefni verður dagskrá á Icelandair Hótel Akureyri kl. 20.00-22.00 þar sem Dóróthea Jónsdóttir mun lesa úr bók sinni Bleikur barmur, séra Hildur Eir Bolladóttir flytja hugvekju og Mareka kvartettinn syngja nokkur lög. Einnig verður flutt atriði úr gamanleiknum Ég var einu sinni frægur þar sem stórleikararnir Gestur Einar Jónasson, Aðalsteinn Bergdal og Þráinn Karlsson taka höndum saman. Síðast en ekki síst verður afhentur styrkur til Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis frá Dömulegum dekurdögum.
Aðgangseyrir er kr. 1.500 sem rennur óskiptur til Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis. Aðeins hundrað miðar eru í boði sem þýðir að fyrstar koma, fyrstar fá! Miðasala er hafin í afgreiðslu Icelandair Hótel Akureyri.