Björgunarsveit aðstoðaði bíla

Vegir eru víða ófærir
Vegir eru víða ófærir

Björgunarsveitin Súlur aðsoðaði bíla sem flytja dagblöðin á Norðurland í Bakkaselsbrekku í morgun. Þar var mikil ófærð og grafningur. Hjálparsveit skáta í Aðaldal sinnti aðstoð við Landsnet. Öxnadalsheiði er ófær og á Víkurskarði er þæfingur. Veðurstofan gerir ráð fyrir að síðdegis kólni í veðri, sem þýðir að hálka á vegum eykst til muna. Lögreglan á Akureyri beinir þeim tilmælum til fólks að leggja ekki leið sína í vesturátt frá Akueyri. Þar er nú stórhríð.

karleskil@vikudagur.is

Nýjast