Innanríkisráðherra hefur lagt fram á Alþingi frumvarp til laga um breytingu á áfengislögum. Lagt er til að hverskonar auglýsingar og önnur viðskiptaboð til markaðssetningar á áfengi og einstökum áfengistegundum verði bönnuð. Bann þetta tekur einnig til vökva sem inniheldur minna en 2,25% af hreinum vínanda ef hann er settur á markað í umbúðum sem eru svo líkar umbúðum áfengra drykkja að hætta sé á ruglingi á áfengu vörunni og hinni óáfengu, segir í frumvarpinu. Frumvarpið er samið í innanríkisráðuneytinu og er stefnt að því að gera núgildandi bann við áfengisauglýsingum bæði skýrara og skilvirkara.
Auglýsingar á áfengi og einstökum áfengistegundum eru bannaðar hér á landi og hefur þannig lengi verið. Í frumvarpi þessu er lögð sérstök áhersla á að koma í veg fyrir að farið sé í kringum bannið með því að auglýsa óáfenga vöru með ríkri tilvísun til hinnar áfengu vöru. Sú breyting er lögð til í frumvarpinu að í stað þess að bannið gildi einungis um auglýsingar nái það jafnframt til annarra viðskiptaboða til markaðssetningar á áfengi og einstökum áfengistegundum. Er gildissvið bannsins þar með orðið víðtækara en áður hefur verið, segir í athugasemdum við frumvarpið.
Samvkæmt upplýsingum Vikudags verður útliti dósarinnar bauksins - á verksmiðju Vífilfells á Akuryeri ólöglegt, verði frumvarpið samþykkt. Unnsteinn Jónsson hjá Vífilfelli segir að innan í bauknum sé stigahús, því hverfi baukurinn ekki, verði frumvarpið að lögum. Hins vegar þurfi væntanlega að skipta um útlit á bauknum, maltið komi sennilega í staðinn.
karleskil@vikudagur.is