Bjartsýnn á framtíð KA

Gunnlaugur Jónsson (t.v.) og Ingvar Gíslason aðstoðarþjálfari KA. Mynd/Sævar Geir.
Gunnlaugur Jónsson (t.v.) og Ingvar Gíslason aðstoðarþjálfari KA. Mynd/Sævar Geir.

„Ég fer mjög sáttur frá félaginu. Þetta hafa verið skemmtileg og krefjandi tvö ár og ég held að báðir aðilar geti verið nokkuð sáttir með þennan tíma,” segir Gunnlaugur Jónsson fráfarandi þjálfari knattspyrnuliðs KA. Hann sagði starfi sínu lausu á dögunum en hann tók við liðinu vorið 2010. Gunnlaugur hættir af persónulegum ástæðum en hann á fjölskyldu fyrir sunnan og aðstæður leyfðu ekki að hann flyttist með fjölskylduna norður. KA hafnaði í 3.-4. sæti í 1. deild karla í sumar með 33 stig, jafnmörg stig og Þróttur Reykjavík en lakara markahlutfall.

„Við erum svekktir yfir að hafa ekki náð þriðja sætinu en við vorum hins vegar eina liðið sem gátum skákað Víkingi Ólafsvík þegar tvær umferðir voru eftir. Þegar rykið sest niður að þá held ég að við getum verið sáttir við þennan árangur eins og tímabilið þróaðist.”

Mega Akureyringar eiga von á að sjá KA í úrvalsdeildinni á næstu árum?

„Klúbburinn hefur alla burði til að vera í efstu deild. Ég fór í það að búa til nýtt lið þegar ég kom fyrir tveimur árum og eins og liðið er skipað í dag þarf ekki mikið til að gera alvöru atlögu að úrvalsdeildarsæti. Til þess að það takist þarf félagið að halda helstu burðarásunum í liðinu og helst að bæta 2-3 alvöru leikmönnum í viðbót á þá eru liðinu allir vegir færir.”

Gunnlaugur segist reikna með að þjálfa áfram. „Það er ekkert sem er hins vegar í hendi en nú er sá tími að fara gang að maður fer að skoða hlutina.”

Margir hafa haft samband við KA og líst yfir áhuga á að taka við starfinu en félagið mun kynna nýjan þjálfara til leiks í næstu viku.

Nýjast