Fjórir voru fluttir á slysadeild Sjúkrahússins á Akureyri í gærkvöld eftir að bíll fór útaf þjóðveginum við Svalbarðsströnd í Eyjafirði um hálf níuleytið. Eftir því sem best er vitað eru meiðsli fólksins ekki alvarleg. Slysið varð með þeim hætti að ökumaðurinn hafði nýlega tekið framúr öðrum bíl og missti þannig stjórn á bílnum, sem fór niður háan vegkant og lenti þar á steini. Bíllinn er talinn ónýtur og var fluttur burt með kranabíl.