15. nóvember, 2012 - 15:05
Fréttir
Öxnadalsheiði, myndin er tekin af vef Vegagerðarinnar
Súlur- Björgunarsveitin á Akureyri hefur verið kölluð út í ófærðaraðstoð á Öxnadalsheiði. Þar sitja nú fastir nokkrir fólksbílar og tveir flutningabílar. Tveir bílar frá björgunarsveitinni eru á leið á heiðina. Veðrið er slæmt, SSV strekkingur og fýkur snjór í skafla auk þess vegurinn er afar háll. Vegagerðin hefur nú auglýst lokun á veginum. Einnig hefur leiðinni um Vatnsskarð verið lokað.