Biðlisti til Dublinar

Um tíu manns eru á biðlista eftir beinu flugi frá Akureyri til Dublinar í Írlandi en flogið verður þann 1. nóvember á vegum Icelandair. „Dublin hefur alltaf verið vinsæll áfangastaður og ferðirnar í ár eru þær fyrstu eftir efnahagshrunið. Fólki finnst gott að fljúga beint frá Akureyri,” segir Anna Guðmundsdóttir hjá Ferðaskrifstofu Akureyrar. Ekki stendur til að bjóða upp á aukaferðir til að anna eftirspurn, en fullt var í fyrri ferðina til Dublinar sem var um páskana. Að sögn Önnu njóta borgaferðir alltaf vinsælda á haustin, en margir nýta ferðirnar m.a. til jólainnkaupa.

throstur@vikudagur.is

Nýjast