Biðlisti eftir minni íbúðum

Frá Háskólasvæðinu á Akureyri. Mynd: Hörður Geirsson.
Frá Háskólasvæðinu á Akureyri. Mynd: Hörður Geirsson.

Biðlisti er eftir minni íbúðum á stúdentagörðum á Akureyri en Háskólinn á Akureyri hefst í næstu viku. Ekki fengust upplýsingar um nákvæman fjölda á biðlista en um tugi nemenda er að ræða. „Það er frekar þröngt um íbúðir núna. Það er allskonar fólk að hringja, ekki bara nemar og eru að leita sér að íbúð. Það virðist vera að skortur sé á húsnæði,” segir Jónas Steingrímsson framkvæmdastjóri Félagstofnun stúdenta á Akureyri.

Hann segir ástandið þó ekkert í líkingu við það sem er fyrir sunnan, þar sem um þúsund manns séu á biðlista eftir stúdentaíbúðum. „Ég hugsa að flestir fái húsnæði að lokum hérna og við höfum aldrei verið í þessum vandræðum eins og þeir fyrir sunnan,” segir Jónas.

Nýjast