Beint flug til Grænlands frá Akureyri

Friðrik Adolfsson. Mynd/Karl Eskil
Friðrik Adolfsson. Mynd/Karl Eskil

 „Flugfélag Íslands hættir að fljúga til Nerlerit Inaat flugvallarins við Scoresbysund á austurströnd Grænlands um áramótin. Air Greenland er með sínar höfuðstöðvar sínar á vesturströndinni og ætlar að þjóna austurströndinni þaðan stóran hluta ársins. Í ljósi þessa höfum við hjá Norlandair ákveðið að bjóða upp á beint flug frá Akureyri til Nerlerit Inaat frá 1. mars á næsta ári,“ segir Friðrik Adolfsson framkvæmdastjóri Norlandair.

Hann segir að flogið verði einu sinni í viku til að byrja með.

„Ég er sannfærður um að þessi nýja þjónusta fær góðar viðtökur, en við munum kynna hana nánar á næstu vikum.“

Starfsemin er aðallega á Grænlandi

„Já, umsvif fyrirtækisins eru langmest á Grænlandi, um 90 % af tekjum félagsins eru vegna flugs þangað. Mikil uppbygging hefur átt sér stað á Grænlandi á undanförnum árum og mér sýnist að svo verði í náinni framtíð. Ferðafólki hefur sömuleiðis fjölgað verulega, þannig að það verður spennandi að sjá hvaða viðtökur áætlunarflugið hjá okkur fær,“ segir Friðrik.

karleskil@vikudagur.is

Nýjast