Barokktónlistarmenn í fremstu röð

Halla Steinunn Stefánsdóttir og Guðrún Óskarsdóttir.
Halla Steinunn Stefánsdóttir og Guðrún Óskarsdóttir.

Á fjórðu Sumartónleikum í Akureyrarkirkju sem haldnir verða kl. 17:00 í dag munu þær Halla Steinunn Stefánsdóttir, barokkfiðluleikari og Guðrún Óskarsdóttir, semballeikari, flytja verk eftir Corelli, Rebel, Couperin, Bach og Bertali.  Þær stöllur eru í fremstu röð barokktónlistarmanna á landinu og verður afar spennandi að hlýða á hljóðfæraleik þeirra. Barokkfiðlan og semballinn voru einkennishljóðfæri 17. og 18. aldar og hljóma þau afar vel saman. 

Tónleikarnir bjóða upp á flakk þvers og kruss um álfuna og draga upp mynd af þróun sónötuskrifa með léttum skammti af danstónlist þessa tíma auk tilbrigðaskrifa. Aðgangur er ókeypis.

Nýjast