Flest bendir til að kosið verði á milli Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar formanns Framsóknarflokksins og Höskuldar Þórs Þórhallssonar þingmanns um hvor þeirra fari fyrir framboðslista flokksins í Norðausturkjördæmi.
Sigmundur Davíð var gestur Sigurjóns M. Egilssonar á Bylgjunni í morgun. Hann sagði að staðan í væri í raun óbreytt, hann og Höskuldur stefni báðir fyrsta sætið. Kjördæmisþing Framsóknarflokksins í NA kjördæmi verður haldið í Mývatnssveit um næstu helgi. Þar verður lögð fram tillaga um framkvæmd vals á framboðslista flokksins í kjördæminu.
Eftir því sem Vikudagur kemst næst, er Gallup að gera könnun á framboðsmálum Framsóknarflokksins í NA kjördæmi.
karleskil@vikudagur.is