Stórhýsið Berghóll II í Hörgársveit, sem áður stóð við Ráðhústorg á Akureyri, er til sölu og brottflutnings. Í húsinu var m.a. Akureyrarútibú Búnaðarbanka Íslands. Húsið er úr timbri og var reist árið 1908. Það var flutt á núverandi stað um 1970. Þar sem það stóð áður, gegnt Nýja bíói, var götuhæð með fullri lofthæð úr steini, enda er húsið reisulegt á myndum frá þeim tíma og er það raunar enn, þó aðeins sé steyptur skriðkjallari undir því á núverandi stað. Húsið er 261m2 og virðist í nokkuð góðu standi. Húsið selst til brottflutnings. Nú eru 3 íbúðir í húsinu, en það býður upp á mikla möguleika, t.d. sem ein íbúð, sem 2-4 íbúðir eða sem verslunar- og skrifstofuhús. Þetta kemur fram á vef Hörgársveitar.