Bandaríska kosningabaráttan rædd í Háskólanum á Akureyri

Háskólinn á Akureyri. Mynd:H0rður Geirsson
Háskólinn á Akureyri. Mynd:H0rður Geirsson
Á félagsvísindatorgi Háskólans á Akureyri í dag verður fjallað um kosningarbaráttuna í Bandaríkjunum út frá ólíkum sjónarhornum Repúblikana og Demókrata. Torgið fer fram í Hátíðarsal Háskólans á Akureyri (N101) frá klukkan 12-13.Stjórnmálaráðgjafarnir Bob Carpenter og Rick Ridder fjalla um kosningabaráttuna, annars vegar frá sjónarhorni repúblíkana og hins vegar frá sjónarhorni demókrata.
 
 
 Fundarstjóri er Grétar Þór Eyþórsson, prófessor í stjórnmála- og aðferðafræði við félagsvísindadeild og viðskiptadeild. Fundurinn fer fram á ensku og er hann öllum opinn.
Bob Carpenter hefur unnið við kosningastjórnun og sem stjórnmálaráðgjafi til margra ára fyrir repúblíkana, t.d. í Alaska, Kaliforníu, Miðvesturríkjunum og New York, og einnig á landsvísu. Hann er með meistaragráðu í stjórnsýslufræðum frá Suður-Kaliforníuháskóla (USC).
Rick Ridder hefur unnið við kosningastjórnun og stjórnmálaráðgjöf fyrir ótal frambjóðendur í Bandaríkjunum og víðar, og þar á meðal fyrir fjóra forsetaframbjóðendur. Hann er forstjóri og einn af stofnendum RBI Strategies and Research í Bandaríkjunum. Ridder er með meistaragráðu í fjölmiðlun frá Bostonháskóla.
 
 
 
 

Nýjast