Bærinn vill 10% ófaglærða á leikskólum - leikskólastjórar vilja breytingu

Leikskólabörn á Akureyri.
Leikskólabörn á Akureyri.

Ellefu leikskólastjórar á Akureyri sendu fyrir nokkru bæjaryfirvöldum erindi þar sem farið er fram á að skólayfirvöld og rekstraryfirvöld leikskóla Akureyrarbæjar endurskoði ákvörðun sína um að fagmenntað starfsfólk í leikskólum Akureyrar sé að hámarki 90% af heildarfjölda starfsmanna á deild. Þar með er verið að gera kröfu á bæinn um að heimila að ráðið sé etur menntað fólk til þess að kenna þessum yngstu skólanemum bæjarins. Skólanefnd bæjarins tók þetta mál fyrir á fundi sínum í gær og vísaði því til gerðar fjarhagsáætlunar fyrir næsta ár, enda er þessi ákvörðun bæjaryfirvalda byggð á því að dýrara er að ráða fagmenntað fólk en ófaglært. Hins vegar er þakið sett á til eins árs í senn og er ákveðið með hliðsjón af fjárhgsstöðu hverju sinni.

Nýjast