Bærinn hvetur fólk til að snyrta gróður

Gróður við gatnamót getur verið varasamur
Gróður við gatnamót getur verið varasamur

Lóðarhafar og umráðendur lóða Á Akureyri eru hvattir til að snyrta gróður sem nær út fyrir lóðarmörk að götum, gangstéttum og stígum og þar sem hann veldur óþægindum fyrir gangandi vegfarendur, umferð ökutækja og skyggir á umferðarskilti og götumerkingar. Snyrtingu á að vera lokið fyrir 15. oktober.

 

Í tilkynningu frá Akureyrarbæ er vitnað í gildandi reglur. Frá gangstétt upp í neðstu grein má ekki vera minni en 2,80 metrar og við akbraut ekki minni en 4,20 metrar. Snyrtingu gróðurs skal lokið fyrir 15. október næstkomandi en að þeim tíma liðnum verður gróður fjarlægður á kostnað lóðarhafa

Nýjast