Bæjarráð Akureyrar vill opinbera rannsókn á barnaheimilinu á Hjalteyri

Frá Hjalteyri.
Frá Hjalteyri.

Á fundi bæjarráðs í morgun var rætt um málefni barnaheimilis sem rekið var á Hjalteyri á árunum 1972-1979 og eftirfarandi bókun samþykkt: 

Bæjarráð Akureyrarbæjar leggur ríka áherslu á mikilvægi þess að fram fari ítarleg, opinber rannsókn á rekstri barnaheimilisins í Richardshúsi á Hjalteyri á áttunda áratug síðustu aldar og aðbúnaði barna sem þar voru vistuð.

Árið 1977 óskaði þáverandi félagsmálastjóri Akureyrar formlega eftir því við Barnaverndarráð Íslands að aðbúnaður barna á heimilinu yrði kannaður. Þeim ábendingum var ekki sinnt sem skyldi og í raun komið í veg fyrir að slík athugun færi fram. Af frásögnum fólks sem dvaldi í barnæsku á heimilinu má hins vegar ljóst vera að grunur félagsmálastjóra Akureyrar um slæman aðbúnað barna í Richardshúsi var á rökum reistur.

Tekið skal fram að Akureyrarbær kom á engan hátt að rekstri barnaheimilisins á Hjalteyri en barnaverndaryfirvöld sveitarfélagsins sendu á sínum tíma börn þangað til lengri eða skemmri dvalar.

Bæjarráð Akureyrarbæjar telur brýnt að leitt verði í ljós hið fyrsta hvað fram fór á heimilinu og hvers vegna var látið hjá líða að bregðast við beiðni félagsmálastjóra Akureyrar um skoðun á aðbúnaði barna þar.


Athugasemdir

Nýjast