Bæjarins beztu pylsur opna á Akureyri

Pylsuvagninn kom til Akureyrar í gær. Nú geta Akureyringar og nærsveitarmenn gætt sér á frægustu pyl…
Pylsuvagninn kom til Akureyrar í gær. Nú geta Akureyringar og nærsveitarmenn gætt sér á frægustu pylsum landsins.

Bæjarins beztu opna á Akureyri í dag, laugardag kl. 13:00 á Ráðhústorginu. Þetta er í fyrsta sinn sem Bæjarins beztu opna á landsbyggðinni en nokkrir staðir eru á höfuðborgarsvæðinu. Vagninn við Tryggvagötu er sá allra þekktasti.

Akureyringurinn Barði Jónsson mun ásamt fjölskyldu sinni reka staðinn fyrir norðan.  


Athugasemdir

Nýjast