Aukinn útflutningur á bjór

Bjórinn býður útflutnings. Mynd/Þröstur Ernir
Bjórinn býður útflutnings. Mynd/Þröstur Ernir

Vífilfell á Akureyri flytur fjóra gáma af bjór til útflutnings í þessum mánuði. Hver gámur inniheldur um 11.400 lítra og því er um rúmlega 45 þúsund lítra að ræða. „Við erum að senda þrjá gáma til Bandaríkjanna, tvo til Kaliforníu og einn til Flórída. Svo fer einn til Ástralíu. Þetta er stærsti mánuðurinn okkar hingað til í útflutningi,” segir Unnsteinn Jónsson verksmiðjustjóri Vífilfells á Akureyri.

Unnsteinn segir útflutning frá fyrirtækinu sé það sem koma skal. „Þetta var rólegt í byrjun en núna er að koma meiri hreyfing og þetta er góð búbót. Við horfum á útflutning sem okkar helsta vaxtarsprota næstu árin. Innanlands markaðurinn er takmarkaður og við reiknum ekkert með að vera mikið stærri á þeim markaði. Til þess að vaxa meira þurfum við því að fá svona verkefni í gang. Bara októbermánuður er um hálft prósent af okkar árs framleiðslu og þetta hefur því gríðarlega mikla þýðingu fyrir okkur,” segir Unnsteinn.

throstur@vikudagur.is

Nýjast