Alls hafa 66 nemendur hætt námi við Verkmenntaskólann á Akureyrií vetur. Óvenjumargir nýnemar eru í þeim hópi og má rekja stóran hluta þess til andlegra veikinda.
Flestir hætta vegna lélegrar mætingar sem orsakast iðulega af kvíða, þunglyndi eða félagsfælni, segir Sigríður Huld Jónsdóttir aðstoðarskólameistari VMA. Hún segir skólayfirvöld hafa áhyggjur af geðheilbrigðisþjónustu á svæðinu.
Mörgum nemendum líður mjög illa og úrræðin virðast ekki vera til staðar. Geðheilbrigðisþjónusta fyrir fólk á aldrinum 16-18 ára er ekki góð á Eyjafjarðarsvæðinu og úr því þarf að bæta.
Hún segir ennfremur að stjórnendur skólans verði lítið varir við vandamál vegna fíkniefnaneyslu.
Boltinn hjá yfirvöldum
Í skýrslu um Verkmenntaskólann á Akureyri, sem gerð var í fyrra, kemur fram að ógn stafi af lítilli geðheilbrigðisþjónustu á svæðinu. Sigríður segir óásættanlegt að nemendur neyðist til að hætta skólagöngu sökum vanlíðunar.
Sem skólastofnun höfum við ekki fjármagn til að bjóða upp á betri þjónustu fyrir veika einstaklinga. Ég tel að stjórnendur og kennarar í VMA hafi í gegnum tíðina gert margt til að koma til móts við nemendur og veikindi þeirra. Við gerum hins vegar þær kröfur að þeir vinni sem mest í sínum málum sjálfir.
Hún segir skólann margoft hafa vakið athygli á vandanum.
Boltinn er núna hjá heilbrigðisþjónustunni og bæjaryfirvöldum en við erum að sjálfsögðu öll af vilja gerð til þess að vinna með þeim.
throstur@vikudagur.is