Alls bárust átta umsóknir um starf skólastjóra Hrafnagilsskóla í Eyjafjarðarsveit. Fyrirtækið Capacent Ráðningar sér um ráðningarferlið fyrir sveitarfélagið og mun nú fara yfir þær umsóknir sem bárust. Eftirtalin sendu inn umsóknir:
Á. Freyja Friðbjarnardóttir, Ásdís Sigurðardóttir, Ástvaldur Heiðarsson, Björk Sigurðardóttir, Halla Magnúsdóttir,
Hrund Hlöðversdóttir, Kristján Arnar Ingason og Róbert Jóhann Haraldsson. Fráfarandi skólastjóri Hrafngilsskóla, Karl Frímannsson, hefur verið ráðinn fræðslustjóri á Akureyri til eins árs, á meðan Gunnar Gíslason fer í leyfi.