Átta stiga forysta Þórs/KA á toppnum

Sandra María Jessen var enn á ný á skotskónum í kvöld fyrir Þór/KA.
Sandra María Jessen var enn á ný á skotskónum í kvöld fyrir Þór/KA.

Forysta Þórs/KA á toppi Pepsi-deildar kvenna í knattspyrnu er orðin átta stig eftir 2-1 sigur liðsins gegn KR á heimavelli sínum í kvöld. Katrín Ásbjörnsdóttir náði forystunni fyrir heimaliðið á 9. mínútu og Sandra María Jessen kom Þór/KA í 2-0 tíu mínútum síðar. Anna Garðarsdóttir minnkaði muninn fyrir gestina snemma í síðari hálfleikinn en nær komust KR-stúlkur ekki.

Þór/KA hefur 28 stig í efsta sæti deildarinnnar en KR er áfram á botninum með þrjú stig eftir ellefu leiki. Stjarnan og Valur geta minnkað forystu Þórs/KA niður í fimm stig en bæði liðin spila annað kvöld þegar ellefta umferð deildarinnar klárast.

Nýjast