Já, ég er alvarlega að íhuga að bjóða mig fram á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi, verði niðurstaðan sú að efna til prófkjörs. Kjördæmisráð flokksins kemur saman um miðjan mánuðinn og þá verður ákveðið endanlega með hvaða hætti verður valið á framboðslistann, segir Ásta Kristín Sigurjónsdóttir bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Fjarðabyggð. Hún segist stefna á annað eða þriðja sæti á listanum.
Efling atvinnulífsins í kjördæminu er ofarlega í mínum huga, einnig byggðamál í víðum skilningi. Sjálfstæðisflokkurinn er að skora hátt í skoðanakönnunum og ég er viss um að niðurstaðan í sjálfum kosningunum verður okkur í hag. Þrír þingmenn er raunhæft markmið að mínu viti.
karleskil@vikudagur.is