Glæsileg dagskrá verður á Græna hattinum á Akureyri milli jóla og nýárs. Í kvöld, fimmtudag, spilar hljómsveitin Brother Grass og kynnir m.a. nýja frábæra jólaplötu, ásamt öðru efni sem þau hafa sent frá sér. Á morgun, föstudag, er það ungstirnið Ásgeir Trausti og Moses Hightower sem sem flytja efni af sínum metsöluplötum og eru tvennir tónleikar það kvöld. Einnig mun Ásgeir Trausti vera með unglingatónleika á laugardeginum 29. desember kl. 15.00.
Ásgeir Trausti hefur slegið rækilega í gegn með plötu sinni Dýrð í dauðaþögn og er platan sú allra söluhæsta á landinu. Samkvæmt nýjustu tölum hefur platan selst í 21 þúsund eintökum á fjórum mánuðum, sem gerir Ásgeir Trausta að söluhæsta nýliða í íslenskri tónlistarsögu.
Á laugardagskvöldið mun diskódúettinn Þú og Ég flytja öll sín vinsælustu lög. Moses Hightower leikur undir hjá þeim Helgu Möller og Jóhann Helgason, auk þess sem Moses mun flytja efni af sínum metsöluplötum Búum til börn og Önnur Mósebók". Tónleikarnir hefjast kl. 22.00.
Árið endar svo að venju með tónleikum Helga og Hljóðfæraleikurunum en þeir hafa síðustu ár endað tónleikahaldið á Græna hattinum með stæl.