Ásdís hætt hjá KA/Þór

Ásdís Sigurðardóttir mun leika í hvítu og svörtu næsta vetur.
Ásdís Sigurðardóttir mun leika í hvítu og svörtu næsta vetur.

Handknattleikskonan Ásdís Sigurðardóttir, leikmaður KA/Þórs, mun ekki leika með liðinu næsta vetur í N1-deild kvenna en þetta staðfestir hún við Vikudag. Ásdís mun spila með FH á næstu leiktíð en hún segir tvær ástæður liggja að baki þessarar ákvörðunar.

„Í fyrsta lagi er ég er að fara í nám og verð með annan fótinn fyrir sunnan næsta vetur. Svo finnst mér einfaldlega lítið í gangi hjá KA/Þór. Við erum hvorki búnar að fá nýjan markvörð eða nýjan þjálfara. Það eru engar æfingar í gangi núna og svo er það oft þannig að nýr þjálfari kemur í ágúst og þá tekur það hálft tímabilið að koma liðinu í almennilegt form. En ég tek það skýrt fram að þetta er allt gert í góðu á milli mín og KA og engin leiðindi þar á milli,“ segir Ásdís.

Þetta er mikil blóðtaka fyrir KA/Þór sem hefur nú misst tvo af bestu leikmönnum sínum frá sl. tímabili, en eins og áður hefur verið greint frá mun færeyski markvörðurinn Frida Petersen ekki snúa aftur næsta vetur. Ásdís er ekki að fara á ókunnar slóðir þar sem hún lék með liði FH á árum áður en hún hefur verið í herbúðum KA/Þórs frá haustinu 2009.

Nýjast