Arnheiður ráðin framkvæmdastjóri Markaðsstofu Norðurlands

Arnheiður Jóhannsdóttir.
Arnheiður Jóhannsdóttir.

Stjórn Markaðsstofu Norðurlands hefur ráðið Arnheiði Jóhannsdóttur í starf framkvæmdastjóra frá næstu áramótum. Arnheiður tekur við starfinu af Ásbirni Björgvinssyni sem hefur gegnt því frá árinu 2008. Arnheiður útskrifaðist sem rekstrarfræðingur frá Háskólanum á Akureyri árið 1999 og lauk ári síðar mastersprófi í alþjóðamarkaðsfræði frá The University of Strathclyde í Glasgow í Skotlandi. Hún starfaði sem ráðgjafi hjá KPMG Ráðgjöf á árunum 2000-2003 og var verkefnastjóri hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands2003-2011 en hefur síðan leitt uppbyggingu Air 66N flugklasans hjá Markaðsstofu Norðurlands.

Tækifæri í aukinni vetrarferðamennsku

„Við eigum tækifæri í aukinni vetrarferðamennsku og höfum fundið fyrir vaxandi áhuga samhliða aukinni fjölbreytni í flugsamgöngum til landsins. Þar má nefna t.d. Bandaríkjamarkað og Rússland. Þaðan koma ferðamenn sem eru vanir vetrarferðamennsku og Ísland er nýr og spennandi valkostur fyrir þá. Hér á Norðurlandi höfum við áhugaverða náttúru að vetrinum, norðurljósin, jólasveinana, að ógleymdri svæðisbundinn matarmenningu sem ég tel að við getum í notfært okkur enn frekar í því augnamiði að laða til okkur erlenda ferðamenn á veturna," segir Arnheiður.

"Við getum líka nýtt okkur menningu og sögu í þessu markaðsstarfi og marga fleiri þætti. Og síðast en ekki síst þurfum við í öllu okkar markaðsstarfi að vera sívakandi fyrir tækifærum sem opnast með nýrri samskiptatækni, samskiptamiðlum á netinu og þannig mætti áfram telja.

Ég tel líka mikilvæga áherslu á komandi árum að efla þau svæði á Norðurlandi sem standa fjær ásóknarmestu ferðamannastöðunum, fá ferðafólk þannig til að staldra lengur við á Norðurlandi. Með lengri dvalartíma skila ferðamennirnir okkur meiri tekjum en þó svo að við leggjum áherslu á að styrkja vetrarferðamennskuna þá verður áherslan engu að síður líka áfram á sumartímann. Markmiðið er að fá beint millilandaflug í framtíðinni en við sjáum líka nú þegar mikinn ávinning af tengifluginu við Keflavíkurflugvöll. Verkefni Markaðsstofu Norðurlands á komandi árum eru því í senn mörg og fjölbreytt,“ segir hún.

Arnheiður hefur jafnframt verið stundakennari í markaðsfræðum við viðskiptadeild Háskólans á Akureyri frá árinu 2006. Í uppbyggingu flugklasans Air66N hefur Arnheiður stýrt kynningum og samningum við samstarfsaðila, fjármögnun klasans, markaðssetningu á Norðurlandi og Akureyrarflugvelli og öðrum þeim áherslum sem styðja það meginmarkmið Air 66N að koma á reglubundnu millilandaflugi um Akureyrarflugvöll. Hún segir þetta verkefni áfram verða eitt það stærsta í starfi Markaðsstofu Norðurlands en margar aðrar áherslur séu mikilvægar á komandi misserum og árum á þeirri leið að styrkja norðlenska ferðaþjónustu enn frekar.

Um MN

Markaðsstofa Norðurlands (MN) hefur starfað frá árinu 2003 og er hún samstarfsvettvangur Norðurlands í ferðamálum. Helsta hlutverk MN er að samræma markaðs- og kynningarmál norðlenskrar ferðaþjónustu gagnvart innlendum og erlendum ferðamönnum. Skrifstofa MN er á Akureyri og eru starfsmenn MN og Air 66N fjórir talsins.

 

Nýjast