Menningarfélagið Hraun í Öxnadal heldur árlega Fífilbrekkuhátíð að Hrauni laugardaginn 9. júní næstkomandi. Um morguninn efna Ferðafélagið Hörgur og Ferðafélag Akureyrar til gönguferðar á Halllok sem er norðurendi Drangafjalls, utan við Hraundranga. Fjallið er 990 m hátt og ferðin gæti tekið fjóra tíma. Mæting við Hraun kl. 09:00 og eru allir velkomnir með réttan klæðnað og nesti. Klukkan 13:00 hefst stutt dagskrá á Hrauni, en þar var lengst af einungis rafmagn frá heimarafstöð. Hraun tengdist raforkukerfi landsins fyrst árið 2007 og var heimarafstöðin þá aflögð. Nemendur Verkmenntaskólans á Akureyri hafa nú gert upp rafstöðina og mun oddviti Hörgárbyggðar setja hana formlega í gang. Nemendum VMA mun verða þakkað verkið á viðeigandi hátt.
Þórhildur Örvarsdóttir mun syngja nokkur Jónasarlög og almennur söngur verður við harmonikkuundirleik Harðar Kristinssonar. Fjallað verður um orðasmíð Jónasar Hallgrímssonar, en hann var einn ötulasti nýyrðasmiður Íslandssögunnar. Kaffisopi verður á boðstólum og eru allir velkomnir þeim að kostnaðarlausu.