Áríðandi tilkynning frá Norðurorku

kort af svæðinu
kort af svæðinu

Vegna óvæntra atvika í vinnu við brunna í miðbænum á Akureyri þarf að taka heita vatnið af þegar í stað, en ekki á morgun eins og til stóð.

Heita vatnið fer af hluta Miðbæjarins og af Innbænum.  Gert er ráð fyrir að heitavatnslaust verði fram á kvöld. Frekari upplýsingar verða gefnar á heimasíðu Norðurorku, no.is

 

Nánari upplýsingar um svæðið þar sem vatnið fer af má sjá hér

Nýjast