Árbakur EA seldur til Frakklands

Árbakur EA hefur verið seldur til Frakkklands/mynd Karl Eskil
Árbakur EA hefur verið seldur til Frakkklands/mynd Karl Eskil

„Skipið er núna í skoðun í Slippnum hérna á Akureyri og verður síðan siglt til Frakklands, þar sem nýr eigandi tekur við því. Við höfum ekki þörf fyrir skipið og það hefur ekki verið mikið í notkun að undanförnu og þess vegna var það sett á söluskrá,“ segir Kristján Vilhelmsson framkvæmdastjóri útgerðarsviðs Samherja. Árbakur var smíðaður í Danmörku árið 1980 og er um 800 brúttólestir.

karleskil@vikudagur.is

Nýjast