Árbakur á makrílveiðum

Árbakur að láta úr höfn á Akureyri í gærkvöldi. Mynd: Þorgeir Baldursson
Árbakur að láta úr höfn á Akureyri í gærkvöldi. Mynd: Þorgeir Baldursson

Skömmu fyrir miðnætti í gærkvöldi hélt Árbakur EA 5  til veiða í fyrsta skipti undir merkjum Útgerðarfélags Akureyringa eftir að Samherji H/F keypti hlut Brims H/F i landvinnslu félagsins á Akureyri. Skipið mun halda til makrilveiða en skipstjóri er Höskuldur Bragasson og fyrsti Styrimaður er Árni R Jóhannesson. Í áhöfn eru 10 menn samkvæmt því sem farm kemur á vefsíðu Þorgeirs Baldurssonar. Fram kemur í frétt á heimasíðu LÍÚ að makríllinn er nú kominnvestur fyrir land og er hann í miklu magni  á stóru svæði á Breiðafirðinum. LÍU hefur hefur þessar upplýsingar frá Guðbrandi Björgvinssyni sem hefur ásamt syni sínum, verið á skaki á svæðinu í vikunni. „Það er gaman að sjá hvernig sjórinn kraumar á stóru svæði í logninu. Það er útlit fyrir að hér sé gríðarlegt magn af makríl,” segir Guðbrandur.

Veðrið hefur verið með eindæmum gott á þessum slóðum og því mikið líf í firðinum. Þeir feðgar eru á handfærabátnum Arnari öðrum á svæðinu, ásamt fjölda annarra handfærabáta. „Stórþorskurinn er orðinn fullur af makríl. Þetta er hér út um allt," segir Guðbrandur.

Nýjast