Annríki verið í sjúkraflugi það sem af er ári

Töluvert annríki hefur verið í sjúkraflugi frá Akureyri það sem af er ári. Sjúkraflug eru orðin 229 fyrstu 6 mánuði ársins og fluttir hafa verið 242 sjúklingar. Á sama tímabili í fyrra höfðu verið farinn 228 flug með 240 sjúklinga þannig að um nánast sama fjölda er að ræða á milli ára, samkvæmt upplýsingum Þorbjörns Guðrúnarsonar slökkviliðsstjóra á Akureyri. “Lengsta flugið var í lok janúar þegar við sóttum sjúkling til Chambery í Frakklandi og flugum með hingað til Akureyrar. Það ferðalag tók um 17 klukkustundir frá því okkar maður fór af stað með undirbúningi og frágangi. Síðan eru það nokkur flug til Grænlands sem hafa tekið allt frá 7 tímum upp í 12 tíma en það fer eftir því hvort um vestur- eða austurströndina er að ræða,” segir Þorbjörn.

Allt árið 2011 voru farin 474 sjúkraflug og fjölgaði þeim um 7% frá árinu 2010. Fjöldi sjúkrafluga náði hámarki árin 2007 (493 flug) og 2008 (494 flug) en þeim fækkaði um nánast 100 flug árið 2009, þegar þau voru 395. Flugum hefur verið að fjölga jafnt og þétt frá þeim tíma.  

Nýjast