11. september, 2012 - 12:25
Fréttir
Björgunarsveitir á Norðausturlandi vinna nú hörðum höndum við að leita að og grafa fé úr fönn. Meginþunginn er í Mývatnssveit þar sem fjárleit fer fram á mörgum bæjum.
Einnig er leitað í Reykjahverfi. Allar björgunarsveitir á svæðinu eru við vinnu og kallað hefur verið eftir aðstoð úr Eyjafirði. Einnig aðstoða björgunarsveitamenn vinnuflokka frá RARIK í Mývatnssveit og Aðaldal en þar liggja raflínur undir skemmdum sökum snjóþunga.