Andspyrna, eða ástralskur fótbolti, hefur verið að ryðja sér til rúms á Íslandi undanfarin ár en lítil hefð hefur verið fyrir þessari íþrótt hér á landi. Nokkrir félagar á Akureyri og á Svalbarðsströnd tóku sig saman í vor og hófu æfingar þrisvar í viku en þeir Sölvi Fannar Sigmarsson, Jón Hrói Finnsson og Þorgils Guðmundsson eru upphafsmenn þessarar íþróttar hér á Akureyri.
Við erum fimm til sex sem mætum reglulega á æfingar en við þurfum fleiri. Stefnan er að stofna deild innan KA eða Ungmennafélagsins Æskunnar á næstunni en til þess þurfum við meiri mannskap, segir Sölvi. Jón Hrói kynntist andspyrnunni í Danmörku þar sem hann bjó í tíu ár. Hann lék um árabil með tveimur félagsliðum þar í landi og var einnig að þjálfa. Hann segir andspyrnu vera íþrótt sem eigi vel við Íslendinga.
Ég held að þessi íþrótt geti vel náð vinsældum hér á landi. Þetta er svona íþrótt þar sem karlmenn fá að vera karlmenn og það virðist eiga vel við íslendinga segir Jón Hrói í léttum tón. Íþróttin heitir á ensku Australian Rules Football og hóf göngu sína hér á landi í Kópavogi fyrir þremur árum. Ástralskur fótbolti er spilaður á sporöskjulaga velli með sporöskjulaga bolta. Fjórir stólpar við hvorn enda vallarins mynda mörkin. Íþróttin minnir um margt á rúgbý og amerískan fótbolta en er þó töluvert frábrugðin þeim báðum.
Við megum t.d. ekki kasta boltanum heldur verðum að kýla hann áfram eða sparka honum. Í rúgbý byrja leikirnir einnig þannig að allir eru á sama punktinum í einni kös en í andspyrnu er dómarakast í byrjun þar sem tveir leikmenn stökkva upp og reyna að ná boltanum. Það er svona svipað og þegar körfuboltaleikur er að byrja. Svo eru menn út allan völl að reyna að ná boltanum og koma honum í markið, segir Sölvi.
Marblettir hér og þar
Það er mikið tekist á í andspyrnu og mega þátttakendur búast við því að fá marbletti hér og þar. Það eru voðalega fáar reglur um hvað má gera og hvað ekki í sambandi við snertingu. Menn eru samt ekkert að meiðast neitt alvarlega en ég gerði eflaust mín gáfulegustu kaup í langan tíma þegar í keypti mér tannhlíf á dögunum, segir Sölvi léttur.
En það er mikilvægt að eiga tannhlífarnar ef menn ætla að stunda þetta að einhverju ráði. Tvö andspyrnulið eru fyrir sunnan og segist Sölvi vonast til þess að þriðja liðið, sem yrði á Akureyri, bætist fljótlega í hópinn. Um leið og maður fær smá hóp er hægt að fara að gera þetta almennilega og þetta verður miklu skemmtilegra. Við stefnum að því að spila okkar fyrsta leik um miðjan ágúst.
Sölvi hvetur áhugasama að koma og prófa en æfingar eru þrisvar í viku; á Svalbarðseyri kl. 20:30 á mánudögum og miðvikudögum og kl. 20:00 á föstudögum á KA-svæðinu. Áhugasamir geta haft samband við Sölva Fannar í síma 843-0790 eða Jón Hróa í síma 840-9330.