Steingrímur J. Sigfússon ráðherra er mikill göngugarpur. Ítarlegt viðtal er við Steingrím í blaðútgáfu Vikudags. Karl Eskil Pálsson ritstjóri bað Steingrím að ráðlegga sér um fjallagöngu, hvaða fjall væri skemmtilegast að klífa. Ráðherrann svaraði nánast án þess að hugsa.
"Ég ráðlegg þér eindregið að fara á Kerlingu, ef þú hefur ekki nú þegar gengið á það tignarlega fjall. Það verður sérhver almennilegur karlmaður að sigra Kerlingu að minnsta kosti einu sinni a ævinni. Ég gekk á Kerlingu þegar ég varð fertugur í góðra vina hópi. Að vera uppi á Kerlingu í björtu og góðu veðri er stórkostlegt. Það er toppurinn, þannig að þú drífur þig bara.