Allt undir þegar erkifjendurnir mætast

Sveinn Elías Jónsson fyrirliði Þórs. Mynd: Sævar Geir.
Sveinn Elías Jónsson fyrirliði Þórs. Mynd: Sævar Geir.

Baráttan um Akureyri verður í agleymingi í kvöld þegar nágrannaliðin og erkifjendurnir, KA og Þór, mætast á Akureyrarvelli í 1. deild karla í knattspyrnu og hefst leikurinn kl. 20:00. Þetta er fyrsti grannaslagur liðanna í deildarleik í tvö ár. Gengi liðanna í deildinni það sem af er sumri er ólíkt; Þór situr á toppnum með þrettán stig og hefur aðeins tapað einum leik af fyrstu sex. KA hefur hins vegar aðeins unnið einn leik en tapað þremur í fyrstu sex umferðunum og hefur fimm stig í níunda sæti.

Það er hins vegar ekki spurt um stöðuna í deildinni þegar þessi lið mætast enda heiðurinn og montrétturinn í húfi. Í prentútgáfu Vikudags sem kemur út í dag er rætt við fyrirliða beggja liða um leikinn mikilvæga í kvöld.

Nýjast