Allt landið að einu starfssvæði

Vignir Sigurðsson, framkvæmdastjóri Búgarðs, hefur verið ráðinn fjármálastjóri hjá Ráðgjafamiðstöð landbúnaðarins ehf., sem tók formlega til starfa um áramótin.

Fyrirtækið hefur tekið yfir alla ráðgjafaþjónustu við bændur í landinu af búnaðarmiðstöðinni og Bændasamtökum Íslands. „Helsta breytingin verður sú að allt landið er undir sömu þjónustu og þá er einnig stefnt að aukinni sérhæfingu meðal starfsmanna,“ segir Vignir. „Búgarður leggst ekki af við þessa þessa sameiningu en það verður eflaust einhver breyting. Það er mikið í húfi að þetta takist vel en þetta eru breytingar sem bændur lögðu sjálfir til að yrðu gerðar. Þetta er því lýðræðisleg ákvörðun.“

Nýjast