Á föstudageftir viku, þann. 29. júní kl. 16.00 munu fimmtán ÁLFkonur opna ljósmyndasýninguna LYSTISEMDIR á útisvæðinu við cafe Björk í Lystigarðinum á Akureyri. ÁLFkonur (A?huga-Ljo?smyndara-Fe?lag fyrir konur a? Eyjafjarðarsvæðinu) er félagskapur kvenna sem hafa sameiginlegt áhugamál, sem er að festa allt milli himins og jarðar á filmu". Hópurinn hefur starfað saman frá hausti 2009, myndað mikið, ferðast og haldið nokkrar sýningar og er þetta sjötta samsýning hópsins. Sýning þessi er hluti af 100 ára afmæli Lystigarðsins á Akureyri, 150 ára afmæli Akureyrarbæjar og sýningunni Allt+ sem skipulögð er af Sjónlistamiðstöðinni. Hægt er að skoða myndirnar fram til 3. sept og er hún opin á opnunartíma Lystigarðsins milli kl. 8 - 23 alla daga. Aðgangur er að sjálfsögðu ókeypis Konurnar sem sýna eru: Agnes Heiða Sku?lado?ttir, Berglind H. Helgado?ttir, Ester Guðbjo?rnsdo?ttir, Freydís Heiðarsdóttir, Gunnlaug Friðriksdo?ttir, Guðný Pálína Sæmundsdóttir, Halla S. Gunnlaugsdo?ttir, ?Helga H. Gunnlaugsdo?ttir, Helga Haraldsdóttir, Hrefna Harðardo?ttir, Íris Björk Reykdal, Kristjana Agnarsdóttir, Lilja Guðmundsdo?ttir, Linda O?lafsdo?ttir, Margre?t Elfa Jo?nsdo?ttir og Berglind H. Helgadóttir.