Akureyrsk útgáfa af spilinu Monopoly rýkur út og segir Guðjón Guðmundsson, eigandi Nordic games sem gefur spilið út, að telja megi öruggt að spilið klárist fljótlega og óvíst hvort fleiri verði pöntuð. Spilið er fáanlegt í verslunum víða á landinu en á Akureyri fæst það í Bónus, Hagkaup, Eymundsson, A4,og BYKO. Guðjón segir að hugmyndin að akureyrsku Monopoly hafa kviknað í fyrra. Ég átti fund með Sigríði (Stefánsdóttur) í afmælisnefndinni í fyrrahaust og fékk þau til að velja götur í spilið. Þá fóru hjólin að snúast. Við viljum að Akureyringar fái að kynna bæinn sinn eins og þeir vilja og þetta er góð leið til þess, segir Guðjón.
Dýrustu göturnar í spilinu eru Aðalstræti og Hafnarstræti en þær ódýrustu Hríseyjargata og Grímseyjargata. Myndirnar af götunum tóku þeir Þórhallur Jónsson, Hörður Geirsson, Árni Ólafson, Emil Valgarðsson og Ármann Kolbeinsson.