Njáll Hilmar Hilmarsson, frá Akureyri náði bestum árangri á haustönn Tækniskólans en hann útskrifaðist sem rafeindavirki frá skólanum í lok nýliðins ár. Hann hlaut einkunina 9.16
Njáll Hilmar bjó fyrsta æviár sitt á Dalvík en flutti þá til Akureyrar. Hann tók grunnnám rafiðna við Verkmenntaskólann á Akureyri á árunum 2009 til 2011.
Mér líkaði vel við skólann, þetta er fyrirmyndarskóli, segir hann um VMA. Leiðin lá að loknu grunnnámi í Tækniskólann og nú þessa dagana er Njáll Hilmar að hefja nám í frumgreinadeild Háskólans í Reykjavík auk þess sem hann hyggst ljúka einingum sem á vantar til stúdentsprófs en hann hyggst síðar meir læra tæknifræði.
Ég hef alltaf haft áhuga fyrir rafmagni og mamma segir að ég hafi sett allt sem ég komst í tæri við í samband. Sem betur fer gekk það stóráfallalaust, ég var ekki nema einu sinni hætt kominn!, segir hann.
Gamalgróinn áhugi fyrir rafmagni frá barnæsku varð til þess að Njáll Hilmar valdi þessa námsbraut og góðan námsárangur segir hann að fyrst og fremst megi þakka áhuga fyrir efninu.
Ég lá ekki svo mikið yfir námsbókum, en er alltaf eitthvað að grúska og áhuginn leiðir mann áfram, segir hann. Sérgreinar hans eru forritun, kerfisfræði, reikningur og hönnun og teikning rafmagnsrása.
Til að ljúka náminu þarf einnig að starfa við fagið eina önn, en Njáll Hilmar hefur unnið hjá Rafeyri á Akureyri en hyggst ljúka starfsnáminu síðar enda í mörg horn að líta um þessar mundir.
Ég er sáttur við árangurinn, það er gaman að þessu og er gott veganesti í það nám sem ég er nú að hefja við Háskólann í Reykjavík, segir hann.