Akureyringar spari áfram kalda vatnið

Akureyringar eru áfram beðnir að fara sparlega með kalda vatnið. Þrátt fyrir lægri stöðu í vatnsbólum bæjarins er þó langt frá því að bærinn sé að verða vatnslaus að sögn forstjóra Norðurorku. Fyrir helgi fór vatn í miðlunargeymum Norðurorku niður fyrir öryggismörk og í kjölfarið beindi Norðurorka þeim tilmælum til viðskiptavina sinna að bíða með vökvun lóða og opinna svæða og fara sparlega með kalda vatnið.

Að sögn Helga Jóhannessonar, forstjóra Norðurorku, er þó ekki hættuástand. Þó  minni vatnsframleiðsla sé í vatnsbólunum fyrir ofan Akureyri vegna þurrka í sumar, er nægt vatn í vatnsbólum á Vöglum en þangað sækja Akureyringar vatn yfir vetrarmánuðina.

Norðurorka beinir þó áfram þeim tilmælum til fólks að það fari vel með þessa náttúruauðlind og hugi að vatnsnotkun sinni. Þetta kemur fram á vef RÚV.

Nýjast