Við höfum verið að greina inflúensutilfelli síðan um áramót í hægt vaxandi takti, en sem betur fer er ekki sama krísuástandið hjá okkur og í Reykjavík, segir Þórir V. Þórisson yfirlæknir á Heilsugæslustöðinni á Akureyri.
Hin árlega inflúensa er farin að stinga sér niður og búast má við að hún gangi yfir á næstu vikum. Bólusetningin í haust var með svipuðu móti og fyrri ár, um 2300 manns á svæði HAK létu bólusetja sig.
Áhersla er lögð á að þeir sem teljist hafa áhættusjúkdóma svo sem hjarta- og lungnasjúkdóma, bælt ónæmiskerfi og fleira láti bólusetja sig á haustin. Ennþá er mögulegt að láta bólusetja sig og er fólki bent á að hafa samband við heilsugæslustöðina og panta þar tíma.
Þórir segir að læknum á stöðinni sýnist tíðnin vera mest meðal ungra barna, tveggja til fjögurra ára. Enginn var inniliggjandi vegna inflúensu á Sjúkrahúsinu á Akureyri en einn nýlega útskrifaður. Ekki kvaðst Þórir hafa af því spurnir að inflúensa hefði áhrif á atvinnustarfsemi í bænum þannig að greinilega hefur hún ekki stungið sér niður af sömu ákefð og syðra, nema Akureyringar séu svona miklu betur bólusettir en Reykvíkingar, segir hann.