Akureyri Handboltafélag hefur serbneskan markvörð undir smásjánni og samkvæmt heimildum Vikudags er hann væntanlegur hingað til lands í kvöld. Akureyringar leita nú logandi ljósi að markverði eftir að Sveinbjörn Pétursson yfirgaf félagið og gekk í raðir Aue sem leikur í þýsku b-deildinni. Samkvæmt sömu heimildum eru talsverðar líkur á því að varnarjaxlinn Hreinn Þór Hauksson snúi aftur til félagsins og leiki með liðinu næsta vetur í N1-deildinni, en hann hefur verið búsettur í Svíþjóð undanfarið.