Akureyri algjör paradís

Akureyri er í miklu uppáhaldi hjá Elmer Sugabo.
Akureyri er í miklu uppáhaldi hjá Elmer Sugabo.

Elmer Sugabo, einn af hæstráðendum í skemmtiferðaskipinu Boudicca, segir Akureyrarhöfn vera á topp þremur í heiminum hvað aðstöðu varðar og fallega siglingarinnkomu. „Útsýnið yfir bæinn héðan frá bryggjunni er eins og paradís í mínum augum. Þú sérð þetta ekki á mörgum stöðum í heiminum og það er alltaf sérstakt að koma hingað,” sagði Elmer við blaðamann Vikudags, en hann hefur komið fjórum sinnum með skipinu til Akureyrar.

Buoudicca lá við Oddeyrarbryggju á dögunum en hátt í 900 farþegar voru um borð, ásamt 329 manna áhöfn. Á milli 60-70 skemmtiferðaskip koma árlega til Akureyrar, en Elmer á von á því að komum skemmtiferðaskipa hingað munu fjölga mikið á næstu árum. „Það er ekki spurning. Þetta er alltaf vinsæll viðkomustaður hjá farþegum,” segir hann.

throstur@vikudagur.is

Nýjast