Akureyri 1862

Á Amtsbókasafninu á Akureyri hangir nú uppi stór veggmynd sem sýnir Akureyri árið 1862 og var sett upp í tilefni af 150 ára afmæli bæjarins. Um er að ræða samvinnuverkefni Arnars Birgis Ólafssonar og Brynjars Karls Óttarssonar um að endurskapa bæinn eins og hann leit út 29. ágúst 1862. Þeir félagar áætla að nýta myndina sem grunn við gerð heimildarmyndar og í kjölfarið er svo stefnt að því að smíða margmiðlunarefni og sýndarveruleika þar sem hægt verður að ganga eftir götum bæjarins, gægjast inn um glugga, spjalla við bæjarbúa og upplifa Akureyri eins og hver annar ferðalangur þess tíma.

Nýjast